Áríðandi frétt!!!!

An eyeful a day keeps the doctor away
Staring at women's breasts is good for men's health and makes them live longer, an new study reveals.
Researchers have discovered that a 10-minute ogle at women's breasts is as healthy as half-an-hour in the gym.
A five-year study of 200 men found that those who enjoyed a loning look at busty beuties had lower blood pressure, less heart disease and slower pulse rates compared to those who did not get their daily eyeful.
Dr. Karen Weatherby who carried out the German study, wrote in the New England Journal of Medicine: "Just 10 minutes of staring at the charms of a well endowed remale is roughly equivalent to a 30-minute aerobics workout.
"Sexual excitement gets the heart pumping and improves blood circulation.
"There is no question that gazing at breasts makes men healthier.
"Our study indicates that engaging in this activity a few minutes daily cuts the risk of a stroke and heart attack in half
"We believe that by doing so consistently, the average man can extend his life four to five years".
Þarna hafið þið það fólk, á svöru og hvítu - það er holt að horfa á brjóst samkvæmt nýjum rannsóknum hjá einhverjum þjóðverjum.
Ég skrifaði niður textann fyrir ykkur á ensku því það er helvíti tæpt að nenna að lesa þetta af myndinni. En í grófum dráttur stendur þarna að það bætir heilsu að horfa á brjóst - blóðflæðis og púls eykst, talað er um að ef þetta sé stundað reglulega og iðjusamlega má lengja líf hins venjulega manns um fjögur til fimm ár.
Mér finnst alltaf gaman að miðla fróðleik til fólks, að geta gefið því smá veganesti inní lífið. Mín var ánægjan!
.. ég skal punga út einhverju alvöru bloggi á næstunni. Víjj.
Yfir&út
- JSJ
Tvöþúsundogátta plús einn
Það er komið nýtt ár ! .. ég er búinn að eiga afmæli, tvítugur - rock on, og jólin búin og allt það. Það er alltaf jafn fúlt að taka niður jólaskrautið en maður getur huggað sig við það að hægt & rólega lengist dagurinn og fyrr en varir verður sumarið komið með öllu sínu tilheyrandi.Það sem á daga mína hefur drifið síðan seinast er misfjörugt en þó aðallega fjörugt. Ég átti afmæli, kláraði einkaflugmanninn, Jenný útskrifaðist, svo komu jólin og áramótin miklu. Ég stikla nú á stóru en þetta er búið að vera snilld að vera í fríi! Jú svo voru reyndar líka próf hjá mér í Desember, helvítis próf - en það fór allt á ágætis veg.
Ég kláraði loksins einkaflugmannsdæmið enda kominn tími til! Dagurinn sem prófið var á var frábær - ekki hægt að biðja um betra flugveður og ég er handviss um að þetta hafi verið besti flugdagur ársins, flugvélin var svo í þokkabót í topp standi! Bara allt við þetta var gargandi snilld. Við skruppum smá hring yfir bæinn og tókum svo kláruðum við bara það sem við áttum eftir af prófinu sem voru nokkrar lendingar. Skírteinið fékk ég svo á Þornláksmessu. AWESOME. Svo ætla ég að taka eitt svona shoutout til Sunnu - því ef hún hefði ekki tekið stóru systir á þetta og talað við prófdómarann fyrir mig um að hunskast til að klára þetta með mér, þá væri þetta örugglega ennþá óklárað. Takk Sunna :-)
Jólin voru snilld - fékk ég að eyða þeim í einhverri allra mestu leti sem þekkst hefur. Tjúttaði reyndar smá í góðum félagsskap og naut góða skapsins í fólkinu í kringum mig. Svo bauðst mér að vinna aðeins út á velli rétt fyrir jól, sem var snilld - allt brjálað að gera, fólk að senda pakka á milli og nóg af fólki að ferðast. Fátt betra en stemmarinn sem getur myndast á vinnustöðum svona rétt fyrir jólin. Svo voru bara þessar regular veislur og fjölskylduboð.
Svo voru bara áramót - mér tókst að líta við í tveimur skemmtilegum boðum áður en ég endaði för í lokapartíinu. Ég skemmti mér mjög vel í góðum félagsskap - ég skemmti mér reyndar líka yfir áramótaskaupinu. En árið svona í heildinni er búið að vera ágætt fyrir mig, svona persónulega. Náði nokkrum markmiðum - bæði á eigin spýtur og með hjálp frá öðrum.
2009 verður partý - ég ætla mér að gera nokkra hluti og ef þeir takast þá verður 2009 snilld. Ég verð snilld, þið verðið snilld - allt verður snilld.
En annars er fyrsti skóladagur á morgun - alltaf jafn leim að mæta fyrsta skóladaginn og ekki með nýja tösku. Ég man að það var alltaf mest spennandi að mæta í skólann með nýja tösku .. til að sýna hinum! .. ég átti einu sinni leðurtösku í 2. bekk. Þið getið ímyndað ykkur hvað ég varð fyrir miklu áreiti frá stelpunum í bekknum, shit. Ég hét því þá og þegar að mæta aldrei aftur með leðurtösku í skólann. Djók.

Hvað get ég sagt? .. mynd segir meira en þúsund orð.

Sunna, við þökkum nú fyrir það að það liggi ekki bananahýði útum alla skrifstofu niðrá velli !

Þetta er svona smá veganesti fyrir ykkur snillingana í kringum mig.

En já, þið fenguð smá blogg & myndir. Takk fyrir árið sem leið og gleðilegt nýtt ár.
Og ég elska inniskónna mína alltaf meir og meir !! :-D
Yfir & út
- JSJ
Always Coca-Cola
.. er að hugsa um að gera þetta að lífs mottóinu mínu, hvar væri þessi heimur án coke - ég bara spyr.En glöggir athugendur hafa kannski tekið eftir því að hérna hefur ekki birst stafur eða mynd í hátt einn og hálfan mánuð. Lítið bara á þetta sem síðbúið sumarfrí. Þó það sé samt hálfgerður vetur úti núna, nýbúið að snjóa að minnsta kosti, en eitthvað virðist veðrið ekki geta ákveðið sig því einn daginn er snjór og kuldi en næsta er hlýtt og slabb en kannski sama dag og það er slabb þá kemur aftur kuldi og slabbið frís og þá er komin hálka - en hverjum er ekki sama um veðrið.. þegar það er búið að kjósa svartan forseta í BNA. Það er svolítið kreisí.
Annars er ég búinn að vera duglegur síðan seinast, búinn að bralla ýmislegt. Það sem stendur þó uppúr var um daginn þegar ég passaði kettina hennar Sunnu og Árna - mig langar í kött núna :-). Svo er ég líka búinn að fara í verklega prófið fyrir einkaflugmanninn en TJAH þetta er eitthvað bras því það var ekki hægt að klára allt sem klára þurfti til að þetta væri gott og gillt svo þetta situr eitthvað á hakanum, en vonandi ekki mikið lengur - annars spring ég.. fo' real. Núna eru samt bara 16 daga í afmælið mitt - það verður ánægjulegt að verða tvítugur. Þá get ég farið í ríkið og svona, aleinn og alles. Það hefur verið venjan seinustu ár að ég og pabbi gerum okkur glaðan dag á afmælisdeginum mínum og bökum okkur vöfflur & kökur og svona og tökum svo hellings af myndum á timer, bara við tveir. Awesome hefð.
Hei! svo hélt Sunna & Alfa líka meeergjað halloween partí - algjör snilld, fullt af gerviblóði og flottum búningum (og áfengi). Ég mætti sem Hitler sjálfur í gömlum jakkafötum úr hjálpræðishernum og með hakakrossmerki sem ég saumaði, eða gerði amk tilraun til því saumavélin klikkaði á seinustu stundu svo ég varð að fá hjálp frá Jenný og tengdamömmu hennar haha - það var samt algjör snilld. Ég er samt búinn að vera með mynd úr þessu partíi sem display mynd á msn slatta lengi - fólk er örugglega farið að halda að ég sé nasisti, the real deal !

Svona í tilefni þess að ég var Hitler á hrekkjavökunni, muwhaha.. NAHTZEE, vííjj.
![]()
Þessir Ísbirnir.. haha :-)

Þetta er off-the-hook svalur hundur - he's all like.. "How you doin' ;-)" .. Joey STYLE
Jæja - ég bloggaði, loksins ! Njótið lífsins fólk, svona í þessu myrkasta skammdegi sem fer að skella á. Pabbi var fyrstur í blokkinni til að setja jólaljós út á svalir, frekar gróft að setja svona snemma finnst mér - svo setti mamma seríur í stofugluggann, aftur.. frekar gróft að setja svona snemma EEEEN .. þetta skammdegi er að drepa mig og jólaljósin eru ýkt kósí.. ég held ég laumist hreinlega bara til að setja upp jólaljós í minn glugga bráðlega :-) .. cuz' i'm coool.
Yfir & út
JSJ
Það sem er helst að frétta
.. er að á morgun er ég að fara í svokallað stage-check fyrir flugið. Það þýðir að ég fer með kennara frá Flugskólanum og hann tekur mig í sambærilegt próf og alvöru próf-kallinn myndi taka mig í. Ég þarf semsagt að standast það til að mega fara í loka verklega prófið. Ég er nú alveg með það á hreinu að ég kann allt sem ég þarf að kunna o.s.frv. eeen.. maður er duglegur að efast um sjálfan sig - gera það ekki allir?Anyhoo - þetta frestar líka áformum mínum um að fara og gefa blóð :-) .. en það bíður bara til betri tíma. Það eru víst einhverjar reglur um blóðgjafir og flug, haha.
Annars er allt búið að ganga sinn vanagang hérna - mæti í skólann þegar ég á að mæta eða amk oftast. Mæti í vinnu þegar ég á að mæta því ég elska djobbið. Reyndar var mjög skrítið seinasta fimmtudag - þá kom þota hérna rétt fyrir 02 .. ég hafði ákveðið að leggja mig aðeins áður en ég mætti og vaknaði svona MAJOR ringlaður (þessi tilfinning sem maður fær þegar maður leggur sig á daginn og vaknar svo það ruglaður að maður veit ekkert hvað kl. er og nothing) og leið eitthvað skringilega en það var fljótt að fara þegar ég fann fyrir kuldanum úti .. dísus. Annars er ég nú reyndar kominn með orð á mig niðrí vinnu sem einhverskonar nagli. Mér er oftast of heitt til að vera í úlpu eða peysu þegar ég er að púla eitthvað þannig að ég kýs oftast að vera bara á bolnum og get verið það án þess að verða vitund kalt. Þetta getur verið hentugt - but it's a killer on the summers ! ..
Æi - ég ætla að fara að læra fyrir þetta blessaða tjékk á morgun.. þarf aðeins að fara yfir hitt og þetta til að vera alveg 100% á þessu öllu saman. *stress & stress*
Set síðan inn þessar reglulegu myndir.

Það er svo erfitt að vera emo !

Hahah.. ég hlæ !

Hver elskar ekki myndir af köttum?
Yfir & út
- JSJ
Farinn suður á boginn..
Ætla að skella mér suður og hitta fólk og reyna að hafa gaman.Njótið helgarinnar öll.
Yfir & út
- JSJ


Hahaha - .. svona á að worka þetta ;-) öll fjölskyldan að vinna saman.
Ahh .. mjög gott.. mjög gott !
Jájá, djöfull er lífið ágætt núna - er reyndar útúr kú syfjaður. Ég vakti nefnilega aðeins lengur seinustu nótt til að hrekkja Sunnu !- Lesið um hrekkinn og sjáið myndir á blogginu hennar Sunnu :-). Hver þarf að djamma þegar maður getur verið að lifa lífinu gegnum hrekki. Samt fyndið þegar ég var að bralla þetta þá labbaði kona framhjá sem var ekki alveg að skilja hvað væri í gangi - ég hló bara.
Nóg hefur skeð síðan seinasta blogg - ég reyndi að blogga um daginn en tókst að eyða því einhvernveginn. En ég skrapp til Kulusuk í staffaferð í byrjun mánaðarins .. fokk hvað það var gaman, leiðinlegt samt að það skyldi vanta í hópinn - sökkar að eiga veika krakka. Rigndi og rigndi - erum að tala um það að maður opnaði sér bjór og eftir nokkrar mínútur var hann orðinn svo vatnsþynntur að ég held að maður hefði alveg eins bara geta verið að drekka malt. En þó þetta hafi bara verið svona túristadagsferð sem við fórum í þá var þetta samt alveg smá upplifun :-) .. ætla mér að fara þangað oftar !
Síðan núna í dag fékk ég í hendurnar nýjan gítar ! Og þessi er Rafmagns þannig að ég er ekki lengur unplugged, ef svo að orði mætti komast. Bráðum fer ég að verða svo svalur að ég hætti að umgangast alla því þeir eru einfaldlega ekki nógu kúl. Þegar ég tala um að ég sé bráðum að verða svalur þá er ég að tala um að í lok þessa mánaðar, ef viðrar skítsæmilega einhverja nokkra daga í röð.. ;-(, þá verð ég orðinn prívat pælot. Langþráður draumur loksins að verða að veruleika. Samt búinn að vera góður tími - búinn að safna ómentanlegri reynslu og kynnast endalaust af flottu fólki, you guys know who you are.
en yoyoyo - ég ætla bara að setja inn skemmtilega myndir núna fyrir ykkur að skoða, svona eins og vanalega - mig lúmskt grunar að þið komið bara hingað til að skoða þær.

Hahaha! Að hugsa sér að einu sinni var þetta tíminn. Þarna var greinilega ekki flott að vera of mjór.
"Don't be SKINNY!
Look better by adding desired pounds this easy way... Without pads, Exercise or Fishy oils.
If you are thin, skinny and underweight because of poor eating habits and if you want to look better by adding desired pounds and inches of welcome weight... try WATE-ON! Gaining the weight you want may be easier than you think... and may change your whole outlook on life.
GAINS OF 5-15 PUNDS AND MORE REPORTED
Scientifically processed, Wate-On is chock full of weight-gaining calories, vitamins, minerals, iron, quick energy elements and other weight-gaining nutrients. Wate-On is pleasant to take -- easy for normal systems to digest and convert into wanted pounds. Cheeks, bustline, hips, thighs and body all should look better without that thin, skinny appearance. And the more Wate-On you take with varied weight maintaining meals, the faster and greater should be your gain. So why be skinny! Ask for Wate-On at druggists today in choice of flavors: Strawberry-Butterscotch-Banana.
WATE-ON"

Íbirnir eru kúl - þó svo að ég hafi ekki hitt neinn í Grænlandi.
Jæja - best að fara að sofa og hvíla hausinn. Er búinn að eyða meirihlutanum af deginum að spila á nýja gítarinn ;-) .. reyni að koma með myndir af honum og magnaranum við tækifæri. Það er ANSI þröngt hérna í herberginu þegar ég er að spila.
ahh... lífið er flott.
... ahh.....víjjj...
kv.
JSJ
ps. þó lífið sé frábært þá hata ég samt ennþá helvítis klósettið.
Demmit
Þegar ég borða kryddbrauð, eða bara finn lyktina af því. Þá hugsa ég umjólin!
En það er ekkert slæmt - mig hlakkar til þeirra :-)

Mér finnst þetta fáránlega fyndið. Præsless.
Hafið það öll sem best ! en sérstaklega íbúar Denver, Colarado & Gránufélagsgötu 33.
Yfir & út
- JSJ
Klósettblogg
Ég ætla að hefja þetta blogg með smá umræðu um nýja klósettið á heimilinu og enda á því að gefa því einkunn á skalanum 1 - 10.Ég er núna búinn að búa í Tjarnarlundinum í 10 ár og rúmlega það. Alltaf hefur verið sama klósettið á baðherberginu síðan við fluttum hingað. Klósettið sjálft var ekkert voðalega sjarmerandi - bilaði nokkrum sinnum og alltaf örlítil hætta á að stíflast en aðalkosturinn var sá að setan var aldrei köld - hún var úr plasti.. annar kostur við það var aldrei er nein hætta á að brjóta setuna eða eitthvað ef maður gleymdi sér aðeins og skellti henni niður. Annar kostur var líka hæðin, pöööörfekt hæð á klósettinu !
En núna er komið nýtt klósett. Það klósett er aðeins meira stíliserað og flottara - hvíti liturinn er.. hvítur meðan á gamla klósettinu var hvíti liturinn meira með svona gulum keim. Ég á ennþá eftir að finna kosti við þetta klósett aðra en hæfileika klósettsins til að sturta niður - það er mun 'öflugra' en gamla. Klósettsetan er hinsvegar alltaf köld, sama þótt meðalhitastig á baðherberginu er í kringum svona 23°C - enda alltaf kveikt á ofni þar inni og ég get varla ímyndað mér hvernig þetta verður í vetur. Síðan er það alltof háreist, engan veginn þæginlegt að sitja á því og t.d. klæða sig í sokka - eða bara almennt sitja á klósettinu til lengri tíma, svona ef maður hefur áhuga á að taka með sér lesefni. Það er líka töluvert mjórra en gamla og það er enginn plús.
Það er hundleiðinlegt að geta ekki einu sinni haft gaman af því að fara á klósettið heima hjá sér. Alveg glatað - því það á ekkert að vera betra en að hafa verið í skólanum kannski heilan dag og komast heim til að gera sitt og helvítis klósettið er bara glatað.
Ég get varla gefið þessu nýja klósetti meira en 4.5 í einkunn. Helvítis klósett. Þess má geta að hitt klósettið fær einkunn uppá 8. Leiðinlega stórt hopp þarna á milli í einkunnum.

En nóg um klósett.
Ég er búinn að bralla fáááránlega lítið seinustu daga. Skólinn byrjaður og hann er uppfullur af einhverju nýútskrifuðum grunnskóla gelgjum. En ég er með fína stundatöflu þannig að þetta er í orden. Sumarið er líka búið að vera brill - frekar saklaust samt. Hef lítið af mér gert - drukkið nokkra bjóra, smá gin. Ég myndi seint teljast sem vandræða unglingur. Ég hlýt að taka þetta út seinna þegar ég eldist - svona midlife crysis.. fæ mér fullt af tattúum og geng á milli ölstaða og lem fólk. Fokk já.
Svo núna er ég að fara að versla mér þennan fína rafmagnsgítar - fæ hann á slikk - þarf samt að versla eitthvað af búnaði.. það gæti orðið svolítill kostnaður.. en óboy hvað ég á eftir að njóta þess að sitja inní herbergi með gítar, magnara og headphones. Herbergið mitt er ÞAÐ lítið að ég þarf mögulega að klofvega magnarann í hvert skipti sem ég geng um herbergið - en þetta verður stuuuð. Einn daginn verð ég rokkstjarna á minni eigin flugvél - flýg á milli 100þúsund manna tónleikastaða víðsvegar um heiminn. Þið hafið þetta bara bakvið eyrað.
.. Ég fann fyndnar myndir á netinu !


ÁRÁS!

Ef Rokkstjörnu draumurinn fer ekki alveg eftir plönum .. þá er þetta alltaf möguleiki. Redneck MANSION !!!
Jæja - þetta er komið ágætt. Ég ætla að halda áfram að .. gera eitthvað. Horfa á þætti á netinu eða læra - erfitt val. Hmmm. En til hamingju Ísland með Silfrið. Ég var samt reiður að ekkert skyldi ganga upp hjá þeim - hefði betur átt að sofa bara og vakna til að horfa á verðlaunaafhendinguna. En.. djöfull var ég stoltur þegar þeir gengu fram til að taka á móti silfrinu ! ... þjóðarstoltið í botni hreinlega.
Yfir & út !
-JSJ
Sæææ
Það er nú kannski tilefni að líta aðeins af lærdómnum og blogga örlítið. Allir kannast við fólkið sem við sjáum í öllum auglýsingum og blöðum, fólkið sem myndast vel. Já, ég er ekki einn af þeim útvöldu. En.. ég hlæ nú bara af svona myndum. Spæling hvort maður skelli ekki inn nokkrum myndum.
Ég ætlaði að reyna að vera reiður.. lít nú bara út fyrir að ég sé með hægðartregðu eða þá að það vanti í mig litning.

Tekíla ! .. hvað getur maður sagt.

Ein mynd af mér og Sunnu.. djammin'. Við vorum bæði í glasi. Hún stúderar líka Next Top Model seríurnar.
Ég hafi samt fyrir því að skanna inn nokkrar gamlar myndir sem hafa hangið uppá vegg hjá mér í möööörg ár.

Hérna er ég og Sölvi mættir. Þarna erum við nú varla eldri en eins árs ! Þó ég viti það nú ekki og kunni ómögulega að sjá út hvað ungabörn eru gömul.. en þessi mynd vekur kátínu hjá mér. :-)

Ég og Sölvi að ganga í fjórða aldursárið. Ég á afmæli 10. des og hann 14 des. þannig að það var bara ákveðið að halda þetta saman. Við vorum lengi vel bestu vinir. Hengum alltaf saman, rifumst aldrei - gátum ALLTAF gert eitthvað af okkur. En tímarnir breytast og mennirnir með og maður hreinlega missir samband við fólk óviljandi. Maður þarf að passa betur uppá svona

Ég og Máni - uppáhaldshundurinn minn af öllum :-) .. ahh good times. Þarna er ég líka með appelsínugulu derhúfunua mína. Ef ég ætti að nefna uppáhaldsflík.. þá yrði þessi appelsínugula derhúfa fyrir valinu. Mér þótti vænna um hana en foreldra mína og fjölskyldu og hún fór helst ekki af hausnum á mér. Svo einn daginn.. þá týndist hún bara uppúr þurru! Ég segi ykkur hér og nú að ég er ennþá sár yfir þessum missi.
Góðir tímar liðnir og góðir tímar framundann. Ég var btw. fáránlega svalur krakki. Yeah.
Yfir & út.
- JSJ