Klósettblogg
Ég ætla að hefja þetta blogg með smá umræðu um nýja klósettið á heimilinu og enda á því að gefa því einkunn á skalanum 1 - 10.Ég er núna búinn að búa í Tjarnarlundinum í 10 ár og rúmlega það. Alltaf hefur verið sama klósettið á baðherberginu síðan við fluttum hingað. Klósettið sjálft var ekkert voðalega sjarmerandi - bilaði nokkrum sinnum og alltaf örlítil hætta á að stíflast en aðalkosturinn var sá að setan var aldrei köld - hún var úr plasti.. annar kostur við það var aldrei er nein hætta á að brjóta setuna eða eitthvað ef maður gleymdi sér aðeins og skellti henni niður. Annar kostur var líka hæðin, pöööörfekt hæð á klósettinu !
En núna er komið nýtt klósett. Það klósett er aðeins meira stíliserað og flottara - hvíti liturinn er.. hvítur meðan á gamla klósettinu var hvíti liturinn meira með svona gulum keim. Ég á ennþá eftir að finna kosti við þetta klósett aðra en hæfileika klósettsins til að sturta niður - það er mun 'öflugra' en gamla. Klósettsetan er hinsvegar alltaf köld, sama þótt meðalhitastig á baðherberginu er í kringum svona 23°C - enda alltaf kveikt á ofni þar inni og ég get varla ímyndað mér hvernig þetta verður í vetur. Síðan er það alltof háreist, engan veginn þæginlegt að sitja á því og t.d. klæða sig í sokka - eða bara almennt sitja á klósettinu til lengri tíma, svona ef maður hefur áhuga á að taka með sér lesefni. Það er líka töluvert mjórra en gamla og það er enginn plús.
Það er hundleiðinlegt að geta ekki einu sinni haft gaman af því að fara á klósettið heima hjá sér. Alveg glatað - því það á ekkert að vera betra en að hafa verið í skólanum kannski heilan dag og komast heim til að gera sitt og helvítis klósettið er bara glatað.
Ég get varla gefið þessu nýja klósetti meira en 4.5 í einkunn. Helvítis klósett. Þess má geta að hitt klósettið fær einkunn uppá 8. Leiðinlega stórt hopp þarna á milli í einkunnum.

En nóg um klósett.
Ég er búinn að bralla fáááránlega lítið seinustu daga. Skólinn byrjaður og hann er uppfullur af einhverju nýútskrifuðum grunnskóla gelgjum. En ég er með fína stundatöflu þannig að þetta er í orden. Sumarið er líka búið að vera brill - frekar saklaust samt. Hef lítið af mér gert - drukkið nokkra bjóra, smá gin. Ég myndi seint teljast sem vandræða unglingur. Ég hlýt að taka þetta út seinna þegar ég eldist - svona midlife crysis.. fæ mér fullt af tattúum og geng á milli ölstaða og lem fólk. Fokk já.
Svo núna er ég að fara að versla mér þennan fína rafmagnsgítar - fæ hann á slikk - þarf samt að versla eitthvað af búnaði.. það gæti orðið svolítill kostnaður.. en óboy hvað ég á eftir að njóta þess að sitja inní herbergi með gítar, magnara og headphones. Herbergið mitt er ÞAÐ lítið að ég þarf mögulega að klofvega magnarann í hvert skipti sem ég geng um herbergið - en þetta verður stuuuð. Einn daginn verð ég rokkstjarna á minni eigin flugvél - flýg á milli 100þúsund manna tónleikastaða víðsvegar um heiminn. Þið hafið þetta bara bakvið eyrað.
.. Ég fann fyndnar myndir á netinu !


ÁRÁS!

Ef Rokkstjörnu draumurinn fer ekki alveg eftir plönum .. þá er þetta alltaf möguleiki. Redneck MANSION !!!
Jæja - þetta er komið ágætt. Ég ætla að halda áfram að .. gera eitthvað. Horfa á þætti á netinu eða læra - erfitt val. Hmmm. En til hamingju Ísland með Silfrið. Ég var samt reiður að ekkert skyldi ganga upp hjá þeim - hefði betur átt að sofa bara og vakna til að horfa á verðlaunaafhendinguna. En.. djöfull var ég stoltur þegar þeir gengu fram til að taka á móti silfrinu ! ... þjóðarstoltið í botni hreinlega.
Yfir & út !
-JSJ
24. ágúst 2008 klukkan 15:08
Jón Sindri Jónsson
Jón Sindri Jónsson