Always Coca-Cola
.. er að hugsa um að gera þetta að lífs mottóinu mínu, hvar væri þessi heimur án coke - ég bara spyr.En glöggir athugendur hafa kannski tekið eftir því að hérna hefur ekki birst stafur eða mynd í hátt einn og hálfan mánuð. Lítið bara á þetta sem síðbúið sumarfrí. Þó það sé samt hálfgerður vetur úti núna, nýbúið að snjóa að minnsta kosti, en eitthvað virðist veðrið ekki geta ákveðið sig því einn daginn er snjór og kuldi en næsta er hlýtt og slabb en kannski sama dag og það er slabb þá kemur aftur kuldi og slabbið frís og þá er komin hálka - en hverjum er ekki sama um veðrið.. þegar það er búið að kjósa svartan forseta í BNA. Það er svolítið kreisí.
Annars er ég búinn að vera duglegur síðan seinast, búinn að bralla ýmislegt. Það sem stendur þó uppúr var um daginn þegar ég passaði kettina hennar Sunnu og Árna - mig langar í kött núna :-). Svo er ég líka búinn að fara í verklega prófið fyrir einkaflugmanninn en TJAH þetta er eitthvað bras því það var ekki hægt að klára allt sem klára þurfti til að þetta væri gott og gillt svo þetta situr eitthvað á hakanum, en vonandi ekki mikið lengur - annars spring ég.. fo' real. Núna eru samt bara 16 daga í afmælið mitt - það verður ánægjulegt að verða tvítugur. Þá get ég farið í ríkið og svona, aleinn og alles. Það hefur verið venjan seinustu ár að ég og pabbi gerum okkur glaðan dag á afmælisdeginum mínum og bökum okkur vöfflur & kökur og svona og tökum svo hellings af myndum á timer, bara við tveir. Awesome hefð.
Hei! svo hélt Sunna & Alfa líka meeergjað halloween partí - algjör snilld, fullt af gerviblóði og flottum búningum (og áfengi). Ég mætti sem Hitler sjálfur í gömlum jakkafötum úr hjálpræðishernum og með hakakrossmerki sem ég saumaði, eða gerði amk tilraun til því saumavélin klikkaði á seinustu stundu svo ég varð að fá hjálp frá Jenný og tengdamömmu hennar haha - það var samt algjör snilld. Ég er samt búinn að vera með mynd úr þessu partíi sem display mynd á msn slatta lengi - fólk er örugglega farið að halda að ég sé nasisti, the real deal !

Svona í tilefni þess að ég var Hitler á hrekkjavökunni, muwhaha.. NAHTZEE, vííjj.
![]()
Þessir Ísbirnir.. haha :-)

Þetta er off-the-hook svalur hundur - he's all like.. "How you doin' ;-)" .. Joey STYLE
Jæja - ég bloggaði, loksins ! Njótið lífsins fólk, svona í þessu myrkasta skammdegi sem fer að skella á. Pabbi var fyrstur í blokkinni til að setja jólaljós út á svalir, frekar gróft að setja svona snemma finnst mér - svo setti mamma seríur í stofugluggann, aftur.. frekar gróft að setja svona snemma EEEEN .. þetta skammdegi er að drepa mig og jólaljósin eru ýkt kósí.. ég held ég laumist hreinlega bara til að setja upp jólaljós í minn glugga bráðlega :-) .. cuz' i'm coool.
Yfir & út
JSJ
Jón Sindri Jónsson


ALWAYS COCA-COLA !!
kveðja
Coke-isti