29júlí

AAAAAA... SÓÓÓL.... HITI.... HITI.... AAAA!!

Titillinn segir allt saman. Seinustu dagar hafa verið eitthvað í þessa áttina - að minnsta kosti í vinnunni. Tveir kallar sem eru að fljúga smá fyrir flugfélagið lentu á vellinum kl 23.. þá var 19 stiga hiti úti! SAY WHAT. 19 stig kl 23.. einhver seldi sálina sína til djöfulsins fyrir þetta veður. Hann á skilið smá klapp á bakið.

Annars er þetta veður ekki bara góðar fréttir - Inniskórnir mínir skemmdust hryllilega þegar ég var fenginn til að fara í göngutúr *mínútu þögn* .. Fór í Vaglaskóg til foreldranna til að njóta veðursins til hins ýtrasta. Auðvitað fylgir þeirri ferð að labba út í búðina sem er fyrir miðjum skógi og kaupa ís. Jæja.. við röltum af stað og ég varð ekki neins var fyrr en ég fór að finna fyrir að inniskórnir klístruðust alltaf við malbikið. Tjah jæja, malbikið varð svo heitt að það byrjaði að "tárast" á vegavinnumáli - á Íslensku þýðir það að tjaran sem var notuð við lagningu "bundna slitlagsins" - aftur nota ég vegavinnumálið, á Íslensku er bundið slitlag beisiklí gatan eða vegurinn.. djöfull eruð þið stupid. ;-) en já - tjaran festist, bráðnaði við gúmmíið í sólanum og svo festist möl líka í þessu þannig að núna er skórinn hálf-ónýtur, get amk ekki notað hann inni, myndi rispa allt og .. alla?. Er þetta þá nokkuð orðið af venjulegum skóm fyrst ég get ekki notað þá inni? Að minnsta kosti ætla ég að skilgreina þetta sem (inni)skó hér eftir.

Annað á þessum heita degi var að ég beraði bringuna í fyrsta skipti í allt sumar. Ég sver það, húðliturinn var sami og á kjúklingabringunum, svona hvítur með smá bláum keim. Tjah, núna er hann bara ennþá rauður - eða smá roði eftir. Þetta er allt að ganga niður ;-). Þetta er bara í annað skiptið sem ég brenn .. ég vissi af hættunni en varð að taka sjénsinn. Bóndabrúnkan var hreinlega orðin of mikil.. vandræðarlega mikil!

Versló alveg að koma, vonandi helst þetta sældar veður í nokkra daga í viðbót :-)

Njótið þið blíðunnar öll og hafið það sem best. Yfir&út

- JSJ



Þetta á við mig - stundum er ég óútskýranlegur.
29. júlí 2008 klukkan 17:59
Jón Sindri Jónsson
1 athugasemd
24júlí

Góđ vika !

Meeen, þetta er búin að vera kúl vika. Reyndar ansi mikið af vinnudögum en það skaðar engan, amk ekki peningabudduna. En já, þetta er búinn að vera góður tími. Búinn að ná að fljúga svolítið - fór t.d. núna í dag í fyrsta tímann þar sem ég flýg einn út á land. Stóóóórt skref fyrir mig, var líka stressaður út í eitt. Ekki bætti að það var asnalega hvasst, hef aldrei lent í annari eins ókyrrð.. en það er bara stuð.. eftirá ! Þetta var snilld samt.. skemmti mér stórvel.. þegar ég var kominn aðeins út fyrir Akureyri tók ég bara upp ipodinn og blastaði tónlistinni, búja.

Svo núna um daginn hitti ég örugglega frægustu manneskju sem ég hef hitt, og mest líklega mun hitta, - Engin önnu er heimilismóðir Bandaríkjanna! Engin önnur en Martha Stewart. Mér fannst það smá gaman, hún var eitthvað að bralla hingað til landsins og kom í massívri einkaþotu.. eitthvað Björgólfs-gengi.

Núna lít ég samt út eins og ég væri tíður gestur á Hlemm. Ég hef ekki rakað mig í þó nokkra daga.. eina ástæðan fyrir því er einfaldlega að ég tými ekki að kaupa rakvélarblöð eins og er! Og þau eru hvergi annarsstaðar að finna.. nema nokkur gömul bara.. ég held ég sleppi að nota þau nema ég komi allur.... heeel 'köttaður' í vinnuna. Gömul rakvélarblöð eru nei.

Svo eru að skella á próf hjá mér... shiiit - ég er svo engan veginn reddí í þau. En ég nenni ekki að pæla í þeim.. á morgun ætla ég að reyna að koma mér í smá aukavinnu! Það gæti verið að ég fái að skreppa til Grænlands með einni vél frá Akureyri. Þetta yrði svona fragt flug - vélin fyllt af drasli.. ég myndi fara með og hjálpa að tæma hana ! Það væri snilld að skreppa til Grænlands á fínu kaupi.. ég vona amk ! :-)

Jæja, vinnan fer að klárast.. Yfir&Út



Þarf ég að fara að tjékka þetta næst þegar ég fer á djammið? :-)
24. júlí 2008 klukkan 22:17
Jón Sindri Jónsson
1 athugasemd
18júlí

Demmit.

Hvar er sumarið?! *dumm dumm dummm* hvar er lífið sem ég þrái.

Helvítis ský, alltaf hreint og bara almennt kúka veður! FRICK.

Annars er bara svona fairly fínt að frétta. Fór í fyrsta flugtímann minn þar sem ég var einn á báti. Reyndist það helvíti fínt - kom mér samt á óvart hvað ég var óhræddur eitthvað. Maður er kannski að koma inn til lendingar og maður hristist út í eitt og svo kemur lendingin og þær fara misvel en maður er bara YEAH. I luv it !

Annars er aðal pælingin hjá mér í augnablikinu hvað ég á að gera eftir sumarið. Mig langar ótrúlega að kaupa mér rafmagnsgítar, en það er heilmikill kostnaður. Mig langar sömuleiðis ótrúlega að fara til útlanda, New York er þar aðal málið. Það væri genius að skreppa eitthvað svona, en ég verð nú að reyna að hugsa gáfulega og sjá hvaða möguleikar væru sniðugir svo maður geri ekki vitleysu. (Jenný G. *hint hint*) En ég mun gera eitthvað !

Ahh, ég blogga later.

Yfir&út
18. júlí 2008 klukkan 11:27
Jón Sindri Jónsson
1 athugasemd
19júní

Aloha.. mig langar til útlanda

Meeeeen, það snjóaði smávegis í nótt! Það er inseeein. En á öðrum nótum þá er lífið allt hið ágætasta. Sumarfjarnámið byrjað, hef reyndar ekki fengið mig í það að líta á það.. hversu gáfulegt sem það nú er. Ég verð í fríi fram á sunnudag þannig að maður hlýýýýýtur að geta nýtt eitthvað af þeim tíma í heimskulegan lærdóm. jee..

Annars var 17. júní núna á mánudaginn. Fékk svona vægt sjokk - allir að útskrifast og eitthvað. Kjánalegt að vera eftirá með þetta allt saman. En mér fannst samt fyndið í vinnunni þann 17.. þetta ísbjarnarrugl var í hámarki þannig hingað á völlinn kom 1stk. þota með eitt lítið ísbjarnarbúr og eina tösku. Þetta þýddi major pening fyrir mig þar sem maður var nú þegar á stórhátíðarkaupi - svo í þokkabót var ég að vinna yfirvinnu. Eftir þetta fjölmiðlafár þá dreif ég mig heim og á svona 20mín fór ég í sturtu, rakaði mig, fór í jakkaföt og var mættur í veislu. Jájá, þetta var mjög fínt. Aðalmómentið á þessum degi var samt þegar ég stóð fyrir framan þotuna og fékk að starta henni, það er basically að ég gef flugstjóranum merki um að hann megi ræsa vélina. Það var SJÚKT að standa á móti henni - draumur í dós.

Ég er farinn að hata MBL.is. Ekki að fréttamennskan þar sé eitthvað svakalega slæm heldur eru þessi moggabloggarar (UPP TIL HÓPA) djöfulsins fífl. Þetta fólk er svo ótrúlega heimskt stundum. Ég veit að maður á ekki að pirra sig á skoðunum annara.. hvað þá vera að kíkja á þessi blogg í fyrsta lagi, en meina fokk þegar fólk ákveður að blogga um einhverja frétt þá getur það vel hunskast til að hafa smá vit í kollinum. Ohh - það ætti bara að leggja þetta dót niður, það væri fyrir bestu.... helvítis moggabloggarar.

Núna er ekkert að gera í vinnunni þannig að ég náði mér í svona gömul heyrnartól sem lágu ofan í einni skúffu hérna og plöggaði þeim í. Núna sit ég með fætur uppá borði, í extra kósí stellingu að hlusta á góða tónlist af netinu bara, svona amk. í bili - það fer allt á fullt eftir ca. klukkustund.



.. hafið það gott - yfir & út.
19. júní 2008 klukkan 07:11
Jón Sindri Jónsson
2 athugasemdir
06júní

05:00

.. er nýji uppáhalds vinnutíminn minn!

Já þið heyrðuð rétt. Það er brillíjant að mæta svona snemma. Reyndar alveg ákveðin og sérstök þreyta sem fylgir svona en meina shii, þegar veðrið úti er svona fínt þá er þetta bara eitthvað til að gera daginn hressann! Annars langar mig eiginlega bara að stökkva uppí flugvél og taka smá hring.

Þess má geta að ég er dotinn inní þetta helvítis facebook. Jónas sem vinnur hérna á vellinum, hann vinnur held ég líka á útvarpsstöðinni voice, seldi mér hugmyndina algjörlega og ég gjörsamlega VARÐ að fá mér svona. Maður er ekki kúl nema að eiga facebook og myspace. Bókstaflega sami hluturinn er fólk veeeerður bara að eiga svona. Finnið mig á facebook eða verið kassi.

Bird Taxi!



Ég kveð í bili!



06. júní 2008 klukkan 06:54
Jón Sindri Jónsson
2 athugasemdir
30maí

Sumariđ..

.. er byrjað og mér líkar það bara svona andskoti vel. Allur gróður búinn að taka við sér og seinustu daga er sólin skín svona ótrúlega að maður er kominn með smá bóndabrúnku.

Maður er síðan farinn að vinna eins og maður, kominn tími til - ég hef ekki unnið í tæpt hálft ár. Skólinn gekk fyrir og er þessari skóla önn lokið. Ég lauk 24 einingum af þessum 27 sem ég skráði mig í ásamt því að vera nánast búinn með bóklega einkaflugmanninn. Og þá ætti ég að vera búinn með 140 einingar sem venjulega ættu að vera nóg til stúdentsprófs en tjahh.. mig vantar ennþá 27 í viðbót :-) fyrir stúdentinn. Þannig að það verða teknar 9 einingar í sumar og 18 á næstu önn og þá... þá verð ég frjáls úr VMA =D

Núna er ég bara að bralla í símanum í vinnuni. Er að ná smá tökum á þessu ;-) fólk verður bara að sýna mér þolinmæði því ég er ekki enn orðinn vel þjálfaður api í þessu. Ég er samt svo duglegur að svara að ég ætti að vera búinn að ná þessu innan skamms. Fólkið hérna er líka duglegt að hjálpa ef manni vantar aðstoð. Kemur mér líka á óvart hvað fólk er þolinmótt í símanum þegar maður þarf að fá hjálp við að bóka það. A.m.k. var ég búinn að undirbúa mig undir að fólk myndi vera illskan uppmáluð.

Þannig að héðan af mér er allt gott að frétta - mér líst helv. vel á sumarið..!

Yfir og út - JSJ
30. maí 2008 klukkan 12:43
Jón Sindri Jónsson
Engin athugasemd
16maí

WALL-E


Wall-E Spotted in LA! from Blink on Vimeo.


Disney og Pixar hönnuðu þetta apparat til að publisha myndina í Disney görðunum sem eru víðsvegar um heiminn.. mér finnst þetta óendanlega svalt.
16. maí 2008 klukkan 12:36
Jón Sindri Jónsson
Engin athugasemd
14maí

Ókei

... seinasta færsla var skrifuð í fýlukasti. Já ég er 19 ára og ég fer oft í fýlu. Þakkir fara til þeirra sem sýna mér umburðarlyndi.

Annars er ég kominn í sumarfrí. Skólaprófunum er lokið með einni undantekningu, þarf að taka upptökupróf í stærðfræði 503. Ég massa þetta í seinna skiptið. Það eru ekki einu prófin sem ég á eftir því Flugmálastjórn Íslands verður með próf hérna á Akureyri fyrir þá sem eru í einkaflugmannsnámi 20. maí. Þá eru þessari ógeðslegu prófatíð lokið. I look forward to finishing you *bendir á prófin* .. hver sá sem veit hvaðan þessu er stolið fær stig.

Já svo er reyndar náminu ekki alveg lokið, ég fer á eitthvað 3 daga vinnuvélanámskeið líka svo ég hafi réttindi til að mega opperate'a tækin niðrá velli. Ætli ég verði ekki sá fyrsti til að valda banaslysi á þessum græjum.. ég er það mikill klaufi þessa dagana. Neinei, ég er fínn dræver.

Síðan í dag fór ég í mitt fyrsta yfirlandsflug - það var mega. Leiðinlegt bara að myndirnar sem ég tók eru alltar eitthvað crappy. Örn kennari tók hinsvegar myndbönd af lendingunum sem við tókum á hinum og þessum flugvöllum á austurlandinu "góða" .. magnaðar lendingar vægast sagt. Það að sitja í 3 tíma í lítilli vél var alveg farið að taka smá á svona í lokin. Maður var farinn að iða aðeins til. En eins og ég sagði, þetta var fjör. Maður þarf samt að sjá um in-flight entertainment sjálfur, rás 1 er ekki alveg að gera sig í háloftunum. Já svo er ég líka kominn með sólóskírteini, þannig að ég má operate'a flugvél einn undir umsjá kennara, það er NEATO !

Ég er líka búinn að dimmitera - það var fucking awesome. Skemmti mér stórkostlega, þó aðeins of mikið á aðeins of stuttum tíma því ég var í hópi fyrstu manna til að lognast útaf - kemur fyrir besta fólk. Annars vorum við á náttúrufræðibrautinni klædd upp sem strumpar - okkur til mikillar gleði. Undirbúningurinn gekk þó brösulega þar sem búningarnir sem voru saumaðir handa okkur voru eitthvað óttarlega skrítnir, þeir voru svo mismunandi í stærðum - þó aðallega ermalengdirnar. Þetta var þó ekkert til að gráta yfir því búningarnir eru smáatriði þegar kemur að þessu. Mesta fjörið var að kynnast þessum krökkum sem eru búin að vera að svima í kringum mann öll þessi ár í skólanum - sömuleiðis fylgdi þessu ákveðið svekkelsi að geta ekki brallað meira með þeim þar sem mér fannst þau öll voða fjörug, fengu mig öll til að hlæja.

Læt fylgja eina mynd hérna af mér að strumpast.. svo er Kjartan fyrir aftan mig að reyna að ná mér.



Smurftastic - Illi Strumpur mættur á svæðið :-) ... góðar stundir.
14. maí 2008 klukkan 22:50
Jón Sindri Jónsson
1 athugasemd
06maí

Mjamm

Seinasta færslan, ever.

Bæjó..
06. maí 2008 klukkan 22:19
Jón Sindri Jónsson
1 athugasemd
25apríl

Gleđilegt Sumar.



Þið sem eigið afmæli í dag, til hamingju með daginn.


Jóni Sindra er samt farið að hlakka til sumarsins, meira en hann gerði áður fyrr. Aðal ástæðan fyrir því er að ég fékk símtal á miðvikudaginn um að mér byðist sumardjobb niðrá flugvellinum. Flugvöllurinn er svona hálfgert mekka fyrir mér, síðan bakterían beit mig og ég fór að stunda flug hefur mig sjúklega mikið langað að starfa þar, þess vegna við að skúra gólfin eftir lokun. En jæja ég tók þessu starfi þannig að núna í dag verð ég að hringja og 'hryggbrjóta' konuna í Norðurorku um að ég geti því miður ekki staðið við mitt og starfað fyrir þau. Mér finnst samt hálf leiðinlegt að hafa tekið starfi og boðað mig til vinnu hjá þeim í Norðurorku en Flugfélag Íslands er bara betra atvinnutækifæri :-)

KARMA.... ég trúi á það.

Yfir og út.. ég ætla að halda áfram að læra *dæs*
25. apríl 2008 klukkan 03:16
Jón Sindri Jónsson
2 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing

Könnun

Be cool, stay in school?