29nóvember

híhí

Hjálp.
29. nóvember 2007 klukkan 17:19
Jón Sindri Jónsson
1 athugasemd
29nóvember

Afturábak.

Munnleg próf í skólanum í þessari viku og ekkert nema. Það er ágætis tilbreyting. Mér er þó orðið ljóst að ég mun þurfa að vinna vel og mikið í þessari prófatíð í nokkrum fögum ef ég ætla að ná þeim.

Núna er aðeins farið að kitla fyrir jólunum hérna heima. Meirihluti skreytinga komnar upp og litli glugginn minn í litla herberginu mínu prýðir aldeilis flottan krans með rauðum perum. Ég er líka byrjaður að stelast til að hugsa um hvað í ósköpunum ég skyldi fá þessi jól, mig vantar þannig séð ekkert merkilegt. En meira hugsa ég nú um hvað er hægt að gefa öðrum. Það finnst vonandi eitthvað þessa komandi helgi.

Ánægjuleg framtíð

Kaldhæðnislegt, eh?
29. nóvember 2007 klukkan 12:06
Jón Sindri Jónsson
1 athugasemd
26nóvember

Ég ætla..

.. að gera eitthvað sniðugt með líf mitt í framtíðinni. Er það ekki alveg ásættanleg hugmynd? Núna hef ég svo ótrúlega gaman að mennta mig í flugnáminu að ég er strax farinn að sakna þess að eyða ekki kvöldunum niðrí skóla með skemmtilegu skólakrökkunum. Við munum ekki hittast í skólastofunni okkar sérstöku fyrr en 29. Janúar - það er svo langt til. Reyndar hittumst við 21. Desember eða eitthvað kringum það til að taka prófin sem Flugmálastjórn ætlar að leggja fyrir okkur.
Seinasti laugardagur var akkurat skólaprófin sem við verðum að standast til þess að mega taka Flugmálastjórnarprófin. Þau gengu bara vel, fengum að vita samdægurs hvernig okkur gekk. 2 óumdeilanlegir snillgar náðu öllum prófunum með sæmd svo voru hinir kannski að gera mistök í einu fagi. Eins og ég náði ekki einu faginu, það þarf að fá 7.5 á prófunum og ég fékk 7.2 en það er alltí lagi því ég féll því ég lærði ekki nógu vel! Það gerist sko ekki aftur! Þannig að ég tek upptökupróf í þessu sama fagi að viku liðni, eða laugardaginn 1. Desember og ætla að rúúústa þessu ójá!

Ég ætla svo þokkalega að verða flugmaður og fljúga útum allt og njóta góðs af! Bjartsýnin er að drepa mig.

Æjj ég skrifaði blogg um skólann! Ég sem ætlaði reyna að gera það ekki.. nennir enginn heilvita að lesa blogg um skólann, en þetta er bara í fyrsta skipti sem ég nýt mín svona vel í skólanum og HLAKKA til að mæta, jedúddamía.

Kæru börn, lifið heil! *Jón dillar rassinum sínum og er ógeðslega bjartsýnn og sér frammá bjarta framtíð*
26. nóvember 2007 klukkan 22:39
Jón Sindri Jónsson
Engin athugasemd
21nóvember

Heyrst hefur..

... að Jesús ætli að vera með sýningu á Glerártorgi klukkan 17 á föstudaginn næstkomandi og bjóða svo uppá drykki. Hann ætlar að breyta vatni í einhvern nýjan heilsudrykk (eitthvað svona sull eins og ávaxtatoppur). Þetta er auðvitað á vegum Vífilfells sem eru að setja þó nokkurn pening í markaðssetningu sína á þessum nýja drykk. Það kostar auðvitað smá monninga að fá Jesús með sér í lið en menn sjá fram á að það muni borga sig tífallt til baka. Minns ætti kannski að spá í hlutabréfum, nei segi pass núna. Sjáum til eftir föstudaginn.

Allir að láta sjá sig, verður vonandi fjör! Bæ, ætla að fara að sofa. Klukkan orðin hálf 2.

Ps. ef þið haldið að eitthvað sé erfitt þá segið þið bara "Ísí písí japanísí" og málið leysist.. snilldar settning!
21. nóvember 2007 klukkan 01:22
Jón Sindri Jónsson
2 athugasemdir
19nóvember

Vá.. blogg!!!

Vá ég vildi að ég væri með svona fréttastrák á snærunum, svona eins og maður sér í gömlu bandarískuglæpamyndunumsemgerastínewyork þar sem það er svona rauðhærður írskur strákur að selja dagblöð hrópandi "read the latest news about the.." já anywho það væri gaman að hafa eitt stykki til að geta kastað út á götu og auglýst þetta blogg, kannski maður fari að finna sér tíma til að fara að skrifa aðeins meira reglulega á þetta. Ég jafnvel hætti að nenna að koma með mánarlegt blogg, how weak?

Núna sit ég í einhverju nostalgíukasti að blasta einhverri gamalli tónlist, í svefngalsa að reyna að læra. Ójé.

Eftir skemmtilegt djamm á föstudaginn er líkamsklukkan mín búin að vera eitthvað skringileg.. mér var gefið eitthvað fönkí special kaffi (ég er ekki kaffidrykkjumaður en fannst þetta svo spennandi að ég varð að smakka) og það hélt mér bara vakandi vel uppundir hádegi.

Ég er með ógeðslega geggjað kúl headphones far í hárinu mínu! Ég fór fram og svona óvart leit í spegilinn og skellti bara uppúr. Það kemur svona dæld fyrir miðjunni (þar sem headhponinn koma yfir.. döö). Hárið er svona uppi, svo kemur dældin, svo aftur upp.. þetta er öfug hraðahindrun.. þett'er hola!

Ég ætla samt að fara að sofa núna, með hárgreiðsluna svona fína og athuga hvernig þetta verður þegar ég vakna með me-her-gjaðann svefnhnakka.

Búja í bili.


Sannleikurinn í SVÖRTU og HVÍTU!

How soon is too soon?
Not soon enough. Laboratory tests over the las few years have proven that babies who start drinking soda during that early formative period have a much higher chance of gaining acceptance and "fitting in" during those awkward pre-teen and teen years. So, do yourself a favor. Do your child a favor. Start them on a strict regimen of sodas and other sugary carbonated beverages right now, for a lifetime of guaranteed happiness.
The Soda pop Board of America

(textinn við hliðiná flöskunni)
-
Promotes Active Lifestyle!
- Boosts Personality!
- Gives body essential sugars!

ÉG ELSKA COKE! OG ÞIÐ ÆTTUÐ LÍKA, AULAR!
19. nóvember 2007 klukkan 01:52
Jón Sindri Jónsson
4 athugasemdir
21september

Jesús&Trópí

Hérna fær Sóley litla bloggið sitt sem hún bað um :)

En jæja, pínku síðan ég bloggaði seinast. Ég held ég sé að verða of kúl fyrir blogg, Myspace anyone?! Nei djók, myspace er leim.. samt er ég með þannig, meina er maður ekki bara out þegar maður á ekki myspace eða?

Ég prufaði að googla Jón Sindri og mér var brugðið, það getur hver sem er liggur við bara fundið þær upplýsingar um mig sem honum vantar, vonandi fæ ég aldrei stalker. Þetta er líka svona með aðra.. en í alvörunni, þú getur fundið mynd eða upplýsingar um hvern sem er ef þú kannt að leita rétt og hefur smá þolinmæði! Gott að búa á litlu landi.

En hey ég lenti í mínu fyrsta árekstri/samstuði (á bíl! :( ), já ókei ekki árekstur en það var bakkað á mig á planinu hérna fyrir utan bara þegar ég ætlaði að fara í skólann. Reyndar sást varla á hvorugum bílnum, rétt aðeins á hinum en þetta var svolítið fyndið eftir á. Þarna voru einhver eld gömul hjón sem keyra svona og ætla að bakka inní stæði við hliðiná mér til að snúa við í botninum á planinu, jæja kallinn bakkar og stefnir svona skuggalega nálægt mér og rekst í, ég bibba og hann þrusar bara í burtu, en stoppar á hinum endanum á blokkinni. Ég rölti að bílnum og svo kemur einhver gömul beygla út og ég bendi henni vinsamlegast á að þau hafi bakkað á bílinn en neeeeiii hún þvertekur það því hún fann ekki fyrir einu né neinu! Og hvernig er hægt að bakka á þegar þú finnur ekki fyrir neinu.. jæja þetta voru orðnar frekar heitar samræður og eina sem ég bað um var að fá bara smá afsökun á þessu en ennþá hélt kellingin fram að þau hefðu ekkert bakkað á enda sæi ekkert á mínum bíl. Kallinn sat inní sínum bíl heillengi, pottþétt að hlusta á eitthvað framhaldsleikrit á Rás1.
Svo þegar ég bað kellinguna um að koma með mér að athuga hvort það myndi sjást eitthvað á hennar bíl, og búja, þar hélt hún kjafti.. eða svona næstum. Held að þetta sé eina skiptið sem ég er ánægður að eiga rauðan bíl því það var svona rautt á þeirra bíl en auðvitað þar sem þessi kona er bara algjör beygla þá vildi hún meina að þetta væri bara ryk.. auðvitað! Kallinn hennar steig svo loksins útúr bílnum og sagðist sjá að hérna hefði orðið smá samstuð og afsakaði sig.. málið dautt! Meina hvað er málið með einhverja kellingu sem hefur ekki vit á einu né neinu að rífa sig? Haha stúpid pípol =)

Ég er líka ekkert smá óánægður með skólann minn, hann er greinilega hættur að borga undir dagskólanemendur sína sem biðja um að fá að taka fög í fjarnámi! Mig vantaði að troða íslensku212 inní stundarskránna en það var ekki hægt þannig að ég ætlaði bara að taka það í fjarnámi og skólinn myndi borga það. En svo nei, lenti þetta í algjöru rugli og eitthvað ves. Ég gaf bara skít í þennan druslu skóla sem lætur fólk borga morðfjár fyrir 2 skitnar einingar og fór bara í Versló þar sem ég var í sumar plús að það er ódýrara fyrir mig að fara þangað heldur en hefði ég tekið þetta í VMA.

Já ég btw. rústaði fjarnáminu í sumar ;) hefði mátt vera duglegri í þessu en náði með 5 og 5 í íslensku202 og sögu203

En það er ein bíómynd sem ég get ekki beeeðið eftir að sjá í bíó! Superbad.. mig hlakkar svo til að sjá þessa mynd, hún fékk svo miklar og góðar viðtökur úti að maður verður held ég bara að sjá þessa mynd. Reyndar dávnlódaði ég henni um daginn (minns er sjóræningi) en hún var í svo leiðinlegum gæðum.
Við förum öll í bíó á hana einn góðan veðurdag.

Mig dreymdi samt skrítinn draum í nótt. Man ekki mikið úr honum en man að ég var að horfa á sjónvarpið og þá kom svona auglýsing, þar var Jesús að auglýsa Trópí í nýjum umbúðum. Mér fannst þetta pínu fyndið þegar ég vaknaði.

Já ég bið bara að heila öllum, hafið það gott.. og já borðið hollt, hreyfið ykkur og verið dugleg að læra í vetur.

Lagið í augnablikinu er greinilega Hausverkur með Botnleðju!

21. september 2007 klukkan 16:43
Jón Sindri Jónsson
3 athugasemdir
09júlí

Og kindin segir Meee, og beljan segir Muuu en hvað segir voffinn??

Vúhú!

Jæja seinasta færsla var skrifuð í pínu panikki, enda vaknaði ég sááárhvalinn (vorkennið mér!!!) ;). En jæja ég fór til lækna kalls og hann sagði "já, þú ert rifbeinsbrotinn". Jæja svo fór ég bara heim aftur og hélt áfram að vera í eins dags frí sem ég tók mér vegna meiðslanna.

En það er búin að vera hellings vinna núna. Íslendingar að taka sig á í grillkjöts átinu, þetta líkar mér! Ykkar át er mitt monní! Farið öll í Nettó og finnið ykkur eitthvað til að gæða á. Þetta drasl er alltaf á einhverjum afslætti og ég veit ekki hvað!

Jæja þá er ég búinn að plögga þetta blessaða grillkjöt, vonandi sjá þeir hjá Norðlenska þetta og gefi mér einhverskonar auglýsingarbónus.

Annars er það títt í fréttum að ég er byrjaður að golfa (sögnin að golfa sbr. að stunda golf ;) ). Jæja það gengur svona upp og ofan, og til hægri og vinstri því höggin mín fara aldrei beint - eða í þá átt sem ég vill að þau fari. Helvítis golfkallar í sjónvarpinu láta þetta líta út eins og hvaða bjáni sem er geti gert þetta. Best að vera bara þolinmóður með þetta og láta þarna "æfingin skapar mei.. blablabla" - drasl.

Ég er bara búinn að snerta öl baukinn EINU sinni í sumar. Kannski TVISVAR en ég man það bara ekki. Held að það sé bara einu sinni. En allavegna þá er þetta með einsdæmum légleg frammistaða, þegar sumarið var að koma þá var maður bara með þetta hugarfar "sumar = djamm" en svona getur þetta farið á annan veg ;). Krakkar bjóðið mér í partí.

Jæja verið berrössuð.


09. júlí 2007 klukkan 19:30
Jón Sindri Jónsson
4 athugasemdir
18júní

fokk.. rifbeinsbrotinn??!?!

Vaknaði núna fyrir 20 mín kófsveittur og með fáránlega verki. Málið er að ég er búinn að vera að vera soldið illt vinstramegin á brjóstkassanum, nánar tiltekið rifjunum. Fékk þungt högg í þau á æfingu á fimmtudaginn og svona já það var alveg óþæginlegt en þúst ekkert verra en það, og þannig er það er búið að vera alveg þangað til núna.. ég hef þurft að hlífa mér aðeins í sumum hreyfingum til að fá ekki verk en ekkert sem þarf að kvarta yfir. Sömuleiðis sést ekkert mar eða neitt. En núna þá svona hálf vaknaði ég eitthvað áðan og var eitthvað að reyna að bylta mér en það gekk ekki það var bara það sárt, ég vaknaði síðan alveg í kjölfarið og rétt svo reisti mig upp aðeins til að finna fyrir nýjum sársauka. Já núna er skelfilega sárt að draga andann og hreyfingar sömuleiðis.. það er eins og ég hafi farið úr brákuðu rifbeini í brotið rifbein?!!?!?!?! helvítis kjaftæði

Ég veit ekki hvað ég á að gera, foreldrar mínir eru ennþá sofandi og ég á ekki að mæta í vinnu fyrr en hálf 6, held að það sé samt úr sögunni í dag...... æji drasl!!! en ég veit náttla ekkert hvort að það sé það alvarlegt en þetta er bara skrítið þar sem þetta var alveg bærilegt þegar ég fór að sofa fyrir 4klst.

Já og ég ákvað að skrifa bara blogg þar sem ég get eiginlega ekki gert neitt annað á meðan ég bíð bara eftir skynsamlegum tíma til að vekja foreldra mína.
18. júní 2007 klukkan 04:20
Jón Sindri Jónsson
3 athugasemdir
05júní

Sumar og sæld!

Jæja ætla að skella inn einu bloggi núna, ég er alveg viss um að þið öll sársaknið mín! Jæja eða ég er amk búinn að sannfæra mig um það =)

Jæja það er alveg nóg búið að vera í gangi. Próf, vinna og já ég keypti mér tryllitæki á fjórum hjólum. Já bíl, ég verslaði mér bíl. Hann er sko tvö þúsund hestöfl og kemst uppí 500km/klst og drífur allt, ég skrapp núna rétt áðan upp á Súlur á honum, engin lygi. Já og líka Hlíðarfjall og batt síðan band aftan í hann og sleðann minn og lét bílinn renna á undan mér, UPP fjallið. Hann er það öflugur.

Já prófin gengu bara vel! Eða meðaleinkunn uppá 6.2 en tjah fall í dönsku202 með 4, jæja það gengur bara betur næst! eþaggi? Síðan svona meiri skólamál þá var ég að senda umsókn í fjarnám í verzló, þannig að ég er fjarnáms verzlingur. Ég nenni samt ekki að standa undir nafni og vera eitthvað að hnakkast, sjáið þið mig nokkuð fyrir ykkur með strípur.. tjah held ekki! ég yrði amk að vera sofandi eða dauður áfengisdauða ef það ætti einhverntíman að gerast. En já Íslenska 202 og Saga203, ef þið lummið á einhverjum íslenskum glósum þá er ég maðurinn til að lána þær til!

Ég er líka búinn að standa við loforðið mitt um að grilla fullt í sumar! Ég og pabbi grilluðum okkur börger núna aðfaranótt sunnudags kl 01 að nóttu! geri aðrir betur :D

En vei ég er búinn að vera að vinna slatta undanfarið, mæting alltafhreint kl hálf 6 sem þýðir að ég vakna svona tíu mínútur í 5 og fæ mér að borða og svona. Þetta er alveg hálf skuggalegt eitthvað að setja þetta svona niður á tölvuskjáinn, að maður sé að vakna svona snemma, meina bara það þegar maður er í skólanum og þarf að vakna kl 7 er hálfgert morð á manni þegar maður vaknar svona snemma á mánudögum, hvað þá þegar maður vaknar kl 5 :|. Jæja þetta venst en þetta er monní monní monní, must be funny.. in the rich mans world! Já úbs stal þessu aðeins úr ABBA lagi.

ABBA lagið má finna hér fyrir áhugasama


nennekkiaðskrifameiragóðanótt. En ég ætla samt að henda inn nokkrum hressum myndum frá því að ég var að vinna á laugardaginn þar sem mér dauðleiddist þar, og svo líka af 2 þúsund hestafla tryllitækinu.



Þessum finnst óóógurlega gaman að fela sig bakvið mig meðan þær reyna að henda ónýtri skinku í hvor aðra, þetta endar auðvitað allt framan í mig.


Þetta er náttla ekkert annað en goða kjúklinga skinkan! Vissuð þið að það eru aðeins 2% fita í henni?


Þetta er náttla staðurinn! Hérna get ég staðið/setið og hlustað á mitt ástkæra útvarp með stillt á Xið án þess að neina truflanir séu, Xið næst hræðinlega inní Norðlenska.. en þessi staður er pörfekkt.


Vó rólegur á að vera harður Jón Sindri! ésvosvalur!


Hérna er kagginn minn! Rauður og ný þveginn ;)


Önnur mynd af kagganum!


Þriðja myndin? Já be jelous! I know you are!


Gangi ykkur vel í prófum sem eruð í prófum! Eða á leiðinni til London á tónleika! Sem er btw algjört svindl!
05. júní 2007 klukkan 00:39
Jón Sindri Jónsson
3 athugasemdir
11maí

Hæ.

Hæ, ég er bara svona að læra.

Bið að heilsa.

kv. Jón Sindri.


11. maí 2007 klukkan 00:38
Jón Sindri Jónsson
3 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Könnun

Be cool, stay in school?