Æji mér leiðist rosalega þannig að ég ákvað bara að fara eitthvað að dunda mér. Þar sem ég á enga myndavél til að lífga upp bloggið þá verð ég bara að pósta svona dóti! :) Ég veit líka að þetta er rosalega illa gert en nennir maður að vera að þykjst ætla að gera eitthvað betur í fyrsta skipti? :D
Eigið örugglega eftir að sjá meira svona dund! Þ.e. ef ykkur líkar - algjör óþarfi að þröngva svona uppá ykkur ef það er ekki áhugi fyrir.
** smá edit ** :)
Anywho, myndirnar tvær sem notaðar voru. KK
28. nóvember 2006 klukkan 07:04
Jón Sindri Jónsson 4 athugasemdir
Ég skrapp aðeins niður í búð í dag og það var jólalag í gangi. Ég hef ekki stoppað að flauta það í allan dag.. þetta er bara svo asanalegt því maður gerir sér ekkert grein fyrir að maður er að flauta það.. vorum í stærðfræðitíma áðan svo fæ ég bara allt í einu blað (svona krumpað saman í bolta) í hnakkann, þá var ein stelpa ekki svo hrifin af þessu og bað mig um að róa mig aðeins - í lok tímans var það hún sem fékk blað framan í sig, hún var blístrandi sama lag! :D Karma :Þ
Annars réðst pabbi í það að setja jólaskraut upp, þá er ég að tala um seríu út á svalir og svo einhverja þrjá plebbalega kransa með ljósum í inní svefnherbergin þrjú. Mér fannst það frekar snemmt til að byrja með og tók minn krans úr sambandi útaf mig langaði ekki að hafa hann.. svo eftir smá stund ákvað ég að vera ekki ógurlega barnalegur og hafa hann bara plöggaðan og njóta þess bara. Mér varð nefnilega hugsað til þegar maður tekur þetta niður 5. Janúar eða hvað það nú var hversu tómlegt það verður.. bara njóta þess að hafa þetta uppi meðan maður getur! Þó svo að maður sé viku á undan!
Styttist líka í afmælið mitt. Er ég bara svona asnalegur eða gæti þetta skipt mig minna máli? Ég er bara ekkert eitthvað að hlakka til að verða einu ári eldri! Það eina jú er það að geta farið inná 18ára skemmtistaði án þess að þurfa að hugsa út í það að komast ekki inn á aldri - that's about it.
Fyrsta prófið eftir viku og einn dag. VÚÚ HLAKKAR ekki til. En það verður rosalega gaman þegar þau verða búin því þá er ekkert nema slaka á, borða óhollt og njóta góðra stunda með vinum í jólafríinu!!!
Bæ.
27. nóvember 2006 klukkan 22:24
Jón Sindri Jónsson Engin athugasemd
Ohh kjánaskapurinn sem fylgir því að vera einn heima! Hver kannast ekki við að vera einn eða ein heima og langað að gera eitthvað sem maður myndi ekki gera ef einhver væri heima, eða amk ekki í sjónfæri við mann!
Amk var ég að horfa á einn eina bardagakeppnina og sá að einn gæjinn gerði svona hreyfingu. Þetta er almennt kallað að skjóta sér inná einhvern - þetta er þá notað til að komast alveg að einhverjum og fella hann, þá með því að grípa utan um fæturnar á honum og ná honum úr jafnvægi. EEEEn mér fannst þetta svo skuggalega flott því gæjinn bókstaflega skaut sér svona 3 metra og jafnvel þá átti hann eftir kannski 1 meter, en hann endaði í köðlunum útaf andstæðingurinn færði sig frá! Já btw. þegar maður skýtur beygir maður sig svolitið mikið og ert með frekar langt bil milli fótanna, svo þegar kannski eins og fremra hnéð er komið nánast í snertingu við gólfið þá notar maður aftari fótinn til að spyrna sér áfram - þannig er maður komin undir vörn andstæðings..
Amk fannst mér þetta nógu töff til að ég færi að pæla hvernig í ósköpunum hann næði svona langt og fór eitthvað að skoða þetta í slowmotion og svo fór ég að prufa þetta inni stofu og svona, þar sem var nóg pláss, þetta gekk nú alveg en eftir kannski þrjú skipti og nokkur stopp í pælingar þá fór ég að fá svona sting í hnéð þegar ég hreyfði fótinn. Já ég hef ekki hugmynd hvernig þessi stingur kom. Æji ég vona bara að þetta sé ekki eitthvað alvarlegt! Prufa bara að ganga þetta af mér við tækifæri ;)
En já.. heimskulegir hlutir sem maður reynir þegar maður er einn heima. Með svona heimskulegum athæfum hef ég örugglega eyðilagt eða skemmt nokkra hluti, teljum svona aðalatriðin upp..
Ég eyðilagði einu sinni lampa þegar ég var ný búinn að horfa á spacejam.. ég var semsagt að troða eitthvað og rak mig í lampann.
Ég var að halda á lofti með svona litlum bolta eitthvað þegar ég var yngri, mér tókst að sparka niður tvo myndaramma áður en ég ákvað að hætta
komist að því að maður á ekki að vera óþolinmóður og bíða ekki eftir pabba þegar maður ætlar að negla í vegg til að hengja upp mynd!
Síðan braut ég einhverntíman skál á stofuborðinu þegar ég var að athuga hversu hratt ég gæti farið frá herberginu mínu yfir að svalarhurðinni, mér tókst samt að fara mjög hratt stundum áður en ég á borðið.
Og þegar mamma manns bannar manni að leika sér með skopparabolta innandyra.. hlustið þá, annars eru kannski svona 83% líkur á að þið eyðileggið eitthvað sem hengur þar
Þetta var bara svona það sem mér datt fyrst í hug en þetta var allt þegar maður var 10 og 12 ára og fyrr reyndar líka. En annars hver kannast ekki við að haga sér eins og bjáni þegar maður er einn heima. Þó svo að maður þroskist uppúr þessu þá á maður samt til að gera eitthvað bjánalegt eða er þetta kannski bara ég? :)
22. nóvember 2006 klukkan 22:20
Jón Sindri Jónsson 2 athugasemdir
Mánudagar.. alveg óendanlega leiðinlegir daga í flestum tilvikum en þó ekki nærri jafn leiðinlegir og þriðjudagar. Þó svo að maður sé að mæta aftur í skólann/vinnuna á mánudegi eftir helgarfrí þá nýtur maður samt oftast þess að hafa verið að hvíla sig og njóta sín aðeins yfir helgina. Maður er svona örlítið endurnærður í byrjun viku en það er fljótt að fara og í lok mánudagsins er maður oft alveg dauðþreyttur. Svo kemur þriðjudagur.. þegar maður byrjar hann nýtur maður engra fríðinda sem koma með nokkra daga fríi það eina sem maður fær í byrjun hans er þreytan frá deginum á undann. Svo eru þetta oft á tíðum lengstu skóladagarnir eða ,eins og var oft hjá mér í vinnunnni í sumar, mest að gera. Að minnsta kosti virðist það vera farveguinn hjá mér, veit ekki með ykkur. Ég amk hata þriðjudaga.
Annað í fréttum er að enskukennarinn minn harkaði þvílíkt af sér til að mæta í skólann. Hann gat eiginlega ekki sagt orð allann tímann því þá fer hann bara að hósta eða mögulega fengið blóðnasir. En hann sagðist þykja svo vænt um menntun okkar að hann harkaði af sér. Maður veit samt ekki alveg hvort maður eigi að vera þakklátur eða fúll yfir að hann skildi hafa mætt og látið okkur læra. Meina siðferðislega væri það réttast að þakka honum rosalega fyrir að mæta og kenna en það sem við mannverurnar högum okkur ekkert voðalega siðferðislega þá voru allir ekkert smá fúlir að hann skyldi kenna. En við vorum svo sem ekki lengi því hann missti eiginlega alveg röddina þegar hann var að lesa eitthvað þannig að við fengum bara að fara eftir þó nokkrar handabendingar frá honum :)
Á bókasafninu í skólanum í dag í fattaði ég svolítið illt.. ég var að lesa fótboltahlutann í fréttablaðinu og mér fannst þetta rosalega áhugaverðar fréttir allt saman .. hinir og þessir meiddir blablabla!!! Ég sem að hef alltaf verið rosalega óspenntur fyrir fótbolta og tilheyrandi. Ég æfði fótbolta í nokkur ár en fannst það alltaf frekar leiðinlegt og fannst alveg álíka leiðinlegt að horfa og fylgjast með honum í sjónvarpinu en allt í einu er eins og ég hafi verið bitinn af einhverri stökkbreyttri fiskiflugu eða eitthvað því ég nýt þess frekar mikið að setjast niður með félögunum og horfa á góðan fótboltaleik.. hvað hefur orðið af mér.. Fyrst er það fótboltinn.. svo blogg.. næst verð ég farinn að mála málverk, notandi trefil og alltaf með hatt!
Neinei það er fínt að vera smá fótboltaunnanndi :) - bara meðan svo lengi sem þetta fer ekki út í neinar helvítis öfgar sem væri þá að hver einasti dagur væri heltekinn af einhverjum fótbolta pælingum og blabla, einn til tveir leikir í sjónvarpi er frábært!
20. nóvember 2006 klukkan 21:36
Jón Sindri Jónsson 2 athugasemdir
Urrandi góður.. það er ég! Ásamt því að vera uranndi góður er ég bestastur, sterkastur, gáfaðastur, flottastur, öfundsverðastur, minnst plebbalegastur, stæltastur, ríkastur, góðastur í öllu, merkismannslegastur, sætastur og fallegastur. Ég ætla að hlífa ykkur með því að þylja ekki fleiri staðreyndir um sjálfan mig í bili. Þið vitið hvort eð er alveg hvernig ég er.. :)
En annað í fréttum er að það er ennþá frost úti, vindurinn hins vegar farinn, og það á að kólna aðeins meira á morgun en eftir það er það bara næstum því að draga sólgleraugun og hawaii skyrtuna fram því hitinn á að ná aftur núll gráðum á selsíus! Skellum einu góðu húrra hrópi fyrir því! :)
Síðan eru nú jólin að nálgast og maður er farinn að panikka yfir jólagjöfunum sem maður á að gefa en maður er kominn með hugmyndir og svona. Held að ég gefi fáum öðrum en fjölskyldumeðlimum jólagjafir. Annars er þetta líka í fyrsta skiptið þar sem mig langar í gjafir, mig hefur venjulega aldrei langað í gjafir - amk hefur það skipt mig litlu máli hvað ég hef fengið.. einn og einn hlutur sem mig vantaði en allt annað var bara svona plús. En núna langar mig svolítið í kannski eins og:
Nýjan síma
Myndavél
Flight Simulatur X (Flight Simulatur 10)
Nýjan skrifborðsstól, núverandi stóll er ónýtur.. hann meiðir mig mikið í bakinu.
Húfu
Vettlinga
Held að það sé ekki meira sem ég annaðhvort þarf eða myndi vilja fá :). En helst af þessu þá er það skrifborðsstóll sem ég vill! Eftir að bakið í stólnunum núna brotnaði þá fór ég að finna fyrir verkjum í mjóbakinu, það var eftir að ég sat kannski í honum í 3klst stöðugt við að spila Football Mananger og svo þegar ég stóð upp og fór í bíó eða eitthvað þá var mér bara illilega illt á einum stað í bakinu. Ekki gott því það er ennþá þannig. En allt annað sem ég myndi fá sem væri kannski af þessum lista væri bara algjör plús.
Hey, allir skemmta sér svo bara vel þessa helgi! :)
17. nóvember 2006 klukkan 23:24
Jón Sindri Jónsson 2 athugasemdir
Á mínu daglega vafri legg ég undir mig þónokkrar síður. Mest megnis íslensku fréttasíðuna Mbl.is og áhugamálasíðuna Hugi.is. Þetta er svona það sem ég skoða helst á hverjum degi en einnig rúlla nokkrar bloggsíður þarna líka með.
Ég rakst inná síðu hjá manni sem er mikið á móti Bandaríkjastjórn og hennar gjörðum. Hann bendir manni á athugaverða linka um hinar ýmsar samsæriskenningar. Venjulega kippi ég mér ekkert voðalega mikið við svona samsæriskenningar en það var linkur þarna á vídjó á Youtube.com sem fjallaði víst um World Trade Center og ýmist því tengt. Ég hef áður horft á heimildarmynd sem ég að fjalla um hvernig þetta er allt BNA stjórninni að kenna en það voru frekar veik rök, en engu að síður pælir maður smá í þessu en fljótlega hverfur það þar sem það stenst ekkert voðalega vel. En þessi mynd sem ég var linkaður á var aðeins öðruvísi. Í henni voru rök og upplýsingar sem ég hafði aldrei heyrt áður.
Í myndinni (hlekkur), sem var hluti 3. af þrem, var byrjað á hljóðskrám frá slökkviliðsmönnum sem voru að vinna í byggingunum rétt fyrir hrunið. Þetta voru allt talstöðvarsamskipti og í þeim sem maður fær að heyra er að þeir segjast allir sjá eða heyra hluti sem virðast helst minna á sprengjur. Og út frá því kemur spurningin um hvort turnarnir hafi verið sprengdir niður. Síðan kemur ógrinni af upplýsingu til að ýta undir þessa sögusagnir.. og eiginlega eftir að hafa horft á þetta get ég varla trúað öðru en því sem er borið fram fyrir mig. Það er einnig farið í flugið sem "átti" að hafa farist í Pensílvaníu, flug 93, sem einhverjir ættu kannski að kannast við úr bíóhúsunum, enda var myndin til sýninga í kvikmyndahúsum landsins fyrir einum og hálfum mánuði eða eitthvað.
En ég mæli stranglega með að allir taki sér smá tíma, þess má geta að umtalað myndband er 34mín tæplega, og horfi á þetta. Gerir engum skaða og mætti í rauninni flokkast undir heimildarmynd. Hver hefur ekki gaman af góðum heimildarmyndum?! En annars horfði ég smá á mynd sem er á móti þessu og hún skaut mikið af þessu sem var minnst á í þessari mynd. En þetta er í versta lagi ágætis afþreying.
En nóg um samsæriskenningar! Ég er fúll! Það er skíta djöfulsins veður hérna á Akureyri. Mikill snjór og andskoti nægur kuldi, algjör pein að sitjast inní bíl sem er ekki búinn að vera hitaður. Það er nú ekki mikið mál að forðast kuldann með því að sitja bara inní herberginu sínu og halda sér hlýjum með því að hamra lyklaborð... en þegar maður getur ekki lokað glugganum sínum verður tölvunotkun ekki einu sinni nóg til að halda manni hlýjum :(. Já ég er búinn að reyna að nota minn aumkunnarverðan styrk til að loka þessum fjandans glugga en en bara get ekki lokað honum! Ég er búinn að checka hvort það sé einhver klaki fyrir og hvaðeina en mig grunar helst að viðurinn hafi blotnað og svo frosið og þannig orðið svona úthleyptur því það er alveg eins og hann sé bara orðinn OF stór fyrir.. þúst.. gluggaplássið.. ahh! Þetta er kjánalegt, eiginlega bara of kjánalegt ;(.
Ég vona bara að það kólni bara ekkert mikið meira en -8°C. Það er meiriháttar vesen að koma sér undan sænginni á morgnanna og klæða sig því það verður svo kalt inní herberginu! Og síðan er spáð ennþá meira frosti.. það liggur við að ég biðji mömmu að kaupa handa mér húfu og vetlinga það er svo leiðinlega kalt að labba í og úr skólann. Svo á reyndar að ná aftur frostmarki á sunnudaginn. Ó guð hvað 0°C myndi hljóma vel í augnablikinu. Veðurspáin á Mbl.is
kv. Jón Sindri "Nonni????????????????" Jónsson
btw. Fólk fyrir sunnan er farið að kalla mig Nonna... don't get that.
Djöfullinn hafi þetta land þegar maður getur ekki einu sinni stundað almennilega líkamsrækt þegar maður villist af og til inní vaxtaræktina! Þetta er bara hneiksli að maður geti ekki fengið að lyfta lóðum eða nota tæki vegna þess eins að það er of margir í kringum þig! Þetta er maður að borga morðfjár fyrir?
Annað í fréttum er að ég varð fyrir einhverju furðulegu hnjaski á fætinum sem skildi eftir mikin verk í ilinni. Þegar ég ákvað að reyna að ganga hann af mér varð hann minni í smá stund en kom svo aftur tvíelfdur með bæði original verkinn og bólgu. Síðan fór ég á æfingu og var pínu aumur en svo hvarf hann og kom ekki aftur. Ég bara skil ekki hvernig maður getur orðið svona sár einhversstaðar að maður gengur haltur um heima hjá sér og svo daginn eftir er þetta alveg farið.
Svo kom eldri systir mín hún Barbara í heimsókn seinasta laugardag. Hún átti að koma á föstudaginn en vegna veðurs var ekki flogið. Elskan átti svo að vera horfin í kringum eitt leitið í dag en vegna veðurs hefur fluginu verið seinkað eitthvað.. og miðað við spánna er þetta ekkert að fara að batna.
Þetta land er farið til fjandans.
Auhh! síðan má líka minnast á það að það styttist í afmælið mitt! JESS. Og þegar afmælið mitt er búið styttist í jólin! JESS. Og þegar jólin eru svona að líða lok þá koma áramót! JESS. Og ef einhver ætlar að dirfast að segja að Desember sé ekki besti mánuðurinn af þessum 12 sem við höfum þá.. hefur hann hreinlega bara ekki rétt fyrir sér. Við Desember börnin vitum betur *hópfaðmlag!*
14. nóvember 2006 klukkan 00:34
Jón Sindri Jónsson Engin athugasemd
08nóvember
Helgin í hnotskurn
Helgin byrjaði svona næstum því á fimmtudeginum! Svona næstum því afþví að það var skóli daginn eftir en bara einn tími snemma um morgunin og um leið og hann yrði búinn, 20mín í tíu, þá væri það höfuðborgin! Jæja það var vaknað svona nokkrar mín í 7 þennan föstudagsmorgun en sofnað aftur.. og í rauninni ekki farið á fætur fyrr en 20 mín yfir. Þá þurfti ég að flýta mér að fara í bað og raka mig og eitthvað svona smotterí en þetta hafðist allt og ég mætti í skólann á réttum tíma þar sem við gerðum ekki neitt í tímanum! Kennarinn hefði alveg eins geta andskotast til að hringja sig bara inn veikann og sleppa því að mæta! En já ég hafðist gegnum þennan pirring af hlökkun. Um leið og kennarinn gaf til kynna að við mættum fara hurfu allir útum dyrnar á stofunni á svona 10 sek og án efa slösuðust einhverjir við þennan troðning.
Svo valhoppaði ég alla leið til Loga, þessa 30metra sem hann býr frá Verkmenntaskólanum og svo var bara fljótlega uppúr því lagt af stað til að ná í systur Önnu, Laufey, og svo Reykjarvík! Ferðin byrjaði náttúrulega eins vel og hefði getað, allt að ganga rosa vel og tónlistin sem Logi var búinn að sjóða saman á disk alveg að brillera! Svo var bara krúsað eftir þjóðvegi 1. þar sem fyrst var stoppað í blönduós þar sem við fengum okkur aðeins að borða - rúnstykkin þarna eru toppurinn. Við reyndar leituðum af bakaríinu þarna í þessum bæ en fundum það ekki, lentum í staðinn í því að næstum festa okkur uppá hraðahindrun sem er ekkert hraðahindrun, þetta er bara risa hóll. Svo héldum við bara áfram eftir þjóðveginum, gerðum stutt pissustopp í borgarnesi og svo var borgin bara næsta stopp. Mér var skutlað heim til Systur minnar og Ása, kærstinn hennar, þar sem ég átti að gista alla helgina.
Mér var svo boðið í mat til systur hans Loga í Chili' con Carne (íslenskað: tjillí kon karne) eða hvernig sem þetta er skrifað. Ég var skít hræddur við þetta því ég er ógulega matvandur og mér finnst rosaleiðinlegt þegar einhver býður mér í mat til sín og ég er síðan svo barnalegur að ég vil ekki borða matinn þeirra (ég smakka samt alltaf eða oftast..) en vóv þessi matur kom mér rosalega á óvart! Mér bara líkaði þetta rosavel og var jafnvel skipað að klára af pönnunni, sem ég gerði. Ekki var það meira þetta kvöld þannig að það mér var bara skutlað heim og farið í háttinn. Reyndar rosa pirrandi stundum að vera svona lengst einhverstaðar í hafnarfirði því það er slatta leið sem þarf alltaf að fara á milli til að komast þangað en það hafðist í öll skiptin.
Svo daginn eftir var rúllað í Smáralindin. Ég hef verið soldið staðfastur á því að kunna ekki að versla mér almennileg föt og svona og bjóst við að ég yrði eiginlega bara eltandi Loga og Önnu, fólk sem kann að versla föt, útum alla Smáralind ekki kaupandi neitt og svona. En reyndar varð það ekkert þannig! Ég keypti mér alveg nóg, 2 boli og eina peysu. Það er reyndar þannig að ég bara kann ekki að klæða mig vel, örugglega flestar stelpur og fólk almennt með tískuvit sem ég þekki sem veit það, en mér fannst þetta sem ég keypti bara alveg ágætt og kostaði alls ekki mikinn pening. Ég gekk að minnsta kosti ánægður út um dyrnar á Smáralindinni! Svo var bara farið heim og kannski gert eitthvað um kvöldið en þá kom Siggi Stormur, veðafréttamaðurinn illi, þar sem hann spáði hundömurlegu veðri, ennþá verra veðri en hafði verið. Og þar sem það kom svona illilega í ljós í kringum níuleytið, bara allt komið í hávaðarok og svona þá var ég bara ánægður að hafa skroppið með Barböru systur minni óléttu að leigja spólu til að horfa á um kvöldið. En spólu valið var hinsvegar bara ekkert gott. Leigðum Ultraviolet og DodgeBall, og ég get vel sagt að enginn ætti virkilega að eyða fé og tíma í mynd eins og Ultraviolet.. aldrei nokkurntíman! Þessi mynd er glæpur á mannkyninu.
Sunnudagurinn byrjaði á því að reyna að vakna í tvær klst. Gekk ekkert öll þessi skipti sem ég reyndi :). Svo tókst það, þá fór ég bara að horfa á fótbolta með Ása, þvílíkir snilldar leikir sem voru í gangi þennan dag. Já ég fékk meðal annars klippingu frá systur minni þennan dag líka! Ágætt að losna við lubbann en því er haldið fram að ég sé með metþykkt hár, sem þykir víst öfundsvert. Mér finnst það ekki, mér líkar ekkert alltof vel stundum við hárið á mér. En þennan dag var lítið gert annað en smá rúntur um alla Reykjarvíkurborg til að komast á áfangastaði og kíkt í Kringluna sem var btw. stútfull af Akureyringum.. og svo smá í perluna. Við fórum í keilu um kvöldið þar sem komst að því að sumir hafa hæfileika til að kasta afturábak og áfram! :). Ég reyndar bauð Baböru og Ása uppá pizzu frá pizzustað sem ég hafði heyrt að brögðuðust alveg eins og Greifapizzur! Og þær gerðu það! Systir mín líka naut brauðstanganna og pizzunnar til fullnustu enda fær hún ekki mikið af Greifapizzum og ostabrauðstöngum þaðan eftir að hún flutti suður. Ég mæli með Wilson's Pizza þegar þið Akureyringar kíkið suður :)
Síðan kom bara mánudagurinn og heimferðin hafin í kringum 11 leitið. Það var ágætt að vera í ekkert alltof mikilli umferð allan tímann. Stoppuðum samt í rosa flottu bakaríi við hliðiná Bónus í Borgarnesi, eiginlega alveg eins bakarí og Bakaríið við Brúna. En við héldum áfram og gerðum smá stopp líka í Blönduós og svo bara heim! ég lagðist strax uppí rúm og hóf að hvíla mig en svo kíkti ég í sund með Loga og svo seinna um kvöldið á fyndnustu mynd sem ég hef séð lengi, hún er rosalega súr en fyndin er hún! Borat: Cultural Learnings of America for Make Benefit Glorious Nation of Kazakhstan. Mæli með að allir sem hafa húmor renni við og horfi á þessa mynd.
Núna er þriðjudagur og nokkrir dagar í helgi, jess! Ég vil samt fara að fá jólin núna.. mér leiðist að söngla jólalög sem ég man ekki textann við.
Bæ.
08. nóvember 2006 klukkan 02:02
Jón Sindri Jónsson 6 athugasemdir
Djöfull er það þæginlegt að geta farið í skólann kl 08.15 og verið til ca 09.40 og svo bara vera búinn! Haha! Óójá! Þetta er geníus að eiga einn svona dag, sérstaklega þennan dag þó ég myndi persónulega kjósa frekar fimmtudag eða föstudag yfir miðvikudaginn þá ætla ég samt alls ekki að gráta yfir þessu! :
Maður kemur heim og maður fer næstum að pæla, hvað í óskpönum get ég gert af mér? Fara að sofa, hanga í tölvunni og horfa á eitthvað, fara í sturtu, hugsa um að skrifa blogg en ekki gera það, fá sér eitthvað lúmskt óhollt að borða, senda skilaboð á fólk og monta sig yfir að vera búinn í skólanum í dag - það er amk nóg hægt að gera. En svona eftir 12 eða 13 þá verður maður samt að nýta tímann og fara að læra eða eitthvað.. álíka bull.
En pínu pirrandi að eiga þó allan daginn framundann vitandi að maður mun eiga eftir að sitja 40mín til klst (jafnvel lengur) langan fund en svo er æfing eftir það sem er alltaf djollí fjör. Maður er samt alltaf álíka kengboginn eftir æfingarnar, hvort sem þær séu harðar eða ekki, heh!
OK, ætla að halda áfram að læra og vera bara þessi almenni örvhennti plebbi sem ég er \o/
btw. ég sökk á gítar, alveg sama hvað ég reyni.. get þó "spilað" nokkur rammsteinlög.. eða hluta úr þeim, húrra.
02. nóvember 2006 klukkan 05:04
Jón Sindri Jónsson 1 athugasemd